Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Um kort og Sakha lýđveldiđ

03. apríl 2009 klukkan 17:31
Kortið hérna í færslunni hér fyrir neðan er aðallega byggt á skiptingum eftir svokölluð "subnational entities", þ.e.a.s. þeim svæðum innan núverandi ríkjamarka í heiminum í dag sem njóta ákveðinnar sjálfstjórnar, sem deilir alls ekki alltaf landamærum með þjóðernismærum, en að mínu mati þó oftar og réttilegar en núverandi "plat þjóðríki" :P

Það sem ég gerði aðallega var að ég fletti upp þeim ríkjum í heiminum sem geta talist sem sambandsríki (federalísk), og samanstanda þ.a.l. af minni ósjálfstæðum ríkjum með ákveðna sjálfstjórn.

Ríki á borð við þetta eru Kanada, Bandaríkin, Mexíkó, Brasilía, Argentína, Þýskaland, Rússland, Indland og Ástralía.

Auk þess fann ég nokkur önnur svæði sem ég vissi til að nytu ákveðinna sjálfsréttinda, eins og t.d. Baskalands á Spáni og svo framvegis... Þær viðbætur eru svolítið handahófskenndar.

Þess vegna eru ríkin í Afríku flest heilleg og eins og þau eru í dag (nógu sundurtætt eru þau samt), því þar eru fá sambandsríki, kannski vegna þess að þjóðernissúpan er nóg samt innan hvers ríkis og forsendurnar og bakgrunnur þjóðernisuppbyggingarinnar allt önnur en kannski á öðrum stöðum á jörðinni. Seinna komst ég reyndar að því að Súdan (stærsta ríki í Afríku) er federation og samanstendur af minni ríkjum sem full og góð ástæða væri til þess að hluta í sundur... Dæmi um subnational entities í Afríku eru ábyggilega líka enn fleiri, sem ég hef ekki komið auga á.

Það tók frekar langan tíma að finna viðeigandi kort á google image og líma þau inn á heimskortið, bjaga þau og skekkja og lita svo ríkin í réttu litum. Málið er að þegar maður notar þessa aðferð þá verður reyndin oft sú að lægsti samnefnarinn í gæðum verður að ráða, og því er heildarkortið ekki til í neinni svakalegri góðri upplausn. Hér má engu að síður líta það í aðeins stærri útgáfu en hér fyrir neðan.

Aðalástæðan fyrir því að ég vildi yfirhöfuð gera þetta var vegna þess að mér langaði til að sjá þessa skiptingu, og þegar ég fór að leita að korti þá kom á daginn að ég gat hvergi fundið slíkt. Ég varð því að gera það sjálfur. Þegar ég fór hins vegar að skoða þetta betur á Wikipedia komst ég að því að þetta kort er til, sem sýnir óljóst innri landamærin líka á intrafederlísku stigi:



sem sýnir þetta líka nokkurn vegin. Á því sé ég að Kóngó er t.d. eitt afríkuríkja sem mætti skipta meira niður.

Þeir sem eru að pæla í því hvað litinir á kortinu tákna þá eru þar merkt stærstu sub-national svæðin á jörðinni. Ég talaði umSaudi Arabíu í seinustu færslu, en hér koma nokkur osjálfstæð svæði, sem ef þau væru sjálfstæð og ríkjaskipulagið væri á þennan veg væri stærst.

1. Sakha Lýðveldið í norðausturrússlandi með Jakutsk sem höfuðborg er dökkblái flekkurinn lengst til vinstri í Rússlandi. Svæðið er 3,1 milljón ferkílómetrar og hefur um 1 milljón íbúa, sem er nú ekki mikið miðað við stórt land, en er nú frekar þéttbýlt miðað við svæði á borð við Grænland og Nunavut. Af þessari milljón býr íbúafjöldi sem samsvarar einu íslandi í dreifbýli og rest í þéttbýli. Forseti þessa líttþekkta lýðveldis heiti Vyacheslav Shtyrov, sem ég treysti að lesendur muni leggja á minnið fyrir næsta Trivíu kvöld.

2. Vesturríki Ástralíu er góður skammtur af vestari hluta Ástralíu er ekki nema 2,6 milljón ferkílómetrar. Höfuðborgin er Perth og þar búa 1,5 milljón af þeim 2,6 milljón sem búa á öllu svæðinu. Það er í raun ekkert hægt að dissa slíkan íbúafjölda.

3. Krasnoyarsk Krai er þriðja stærsta land í heimi, og er líka í rússlandi, næsti dökkblái flekinn við hliðin á Sakha lýðveldinu og er 2,4 milljón ferkílómetrar á stærð. Krasnoyarsk er ekki lýðveldi, en krai mætti þýða sem "land" eða svæði eða eitthvað slíkt. Það er því engin forseti í landinu, og því einsksis nýtt að reyna að vera að læra eitthvað um þjóðhöfðingjann þar á bæ. Það myndi aldrei koma á trivia. Þarna búa 3 milljón manns. Það er líka gott að muna nafnið á Krasnoyarsk Krai ef maður er að spila mikið Traveler IQ challenge á Facebook (sem btw. ég er kominn með 627þúsund stig í núna, sem er bara nokkuð gott, en kemur mér þó ekki í efsta sætið á friendlistanum mínum).

4. Grænland. 2,1 milljón ferkílómetrar. Eyja vestur af Jótlandi. 57þúsund manns. Stærsti jökull í heimi. Það land sem er hvað næst Íslandi af öllum löndum, en hvað fjærst okkur í hugarlund, menningu og aðstæðum.

5. Nunavut, norðaustast í Kanda. Við hliðin á Grænlandi. Nær yfir Baffinseyju hina stóru og aðliggjandi svæði. Samanlagt 1,9 milljón ferkílómetrar. Þarna búa 31 þúsund manns. Það er varla hægt að tala um þetta sem eitthvað alvöru "entity", enda aðeins örfá ár síðan svæðið var aðskilið frá Ríki Norðursvæðisins í Kanada. Engu að síður hafa þeir talsverða sjálfstjórn yfir sér og í "höfuðborginni" Iqaluit hefur aðsetur Ann Meekitjuk Hanson ríkisstjóri og ríkisstjórn Evu Aariak. Nöfnin benda til þess að hér sé um inúíta að ræða og mér finnst það óræðilega krúttlegt. Ég legg til að þegar næsta uppstokkun verður gerð í heimsskipaninni þá verði Grænland og Nunavut sameinað. 4 ferkílómetrar af jöklum og selum og 100þúsund innúítar. Ég er strax að dýrka hugmyndina. Mjög þjóðernisleg.

Ég læt þetta duga.

Skrifa athugasemd

Halldór who?


Nafn: Halldór Berg
Fćddur:1986

Sjálfsmynd síđustu 20 árin í ţessari röđ:

Sandgerđingur
MRingur
Kínverji
Nemi í heimspeki, hagfrćđi og stjórnmálafrćđi á Bifröst

Gömlu Myndasögurnar

Image Hosted by ImageShack.us

Innskráningar kubbur